Hraðtengi úr 304 ryðfríu stáli sem er þægilegt að nota og auðvelt að taka í sundur með einni hendi. Henta vel í alla bruggtengda notkun og þola þrýsting allt að 60psi.
Algengast er að nota tengin þannig að vera með slöngubúta með kerlingu á öðrum eða báðum endum, og svo karla t.d. á krönum, dælum, varmaskiptum og fleiru. Þannig er hægt að færa slöngur á milli í örfáum handtökum. t.d. flytja útgang á dælu frá potti (whirlpool t.d.) yfir í varmaskipti. Einnig þægilegt til að geta tekið sömu græjur úr sambandi við bruggkerfið fyrir þrif og geymslu.
Kerlingarnar eru með silikon pakkningu.
Ryðfrítt hraðtengi - 1/2" MPT - Karl
- Vörunúmer: qd12mptmale
- Framboð: Ekki á lager
-
980kr