Öll tæki og tól sem þú þarft til að gera fyrsta bjórinn þinn frá grunni!
Í pakkanum má finna eftirfarandi:
- 33l suðutunna, með 1x2000w hitaelementi
- 33l gerjunartunna með vatnslás og vatnsláspakkningu
- Meskipoki úr fínu nælonefni til að meskja í
- Hitamælir (digital)
- 100gr OXI - Hreinsi og sótthreinsiefni
- Sykurflotvog
- Hævert (til að flytja bjórinn á milli íláta)
- 70 tappar
- Töng til að setja tappana á
- Hráefni í fyrstu bjórlögnina - Bee Cave Amerískt ljósöl
Allt sem þú þarft til að brugga þinn fyrsta bjór. Vinsamlegast láttu vita með eins dags fyrirvara að þú ætlir að fá byrjendapakkann, ég hann ekki alltaf 100% reddí með engum fyrirvara.
Leiðbeiningar til að brugga eftir má finna hér
Athugið að það er ekki æskilegt að færa suðupottinn þegar hann er fullur af sjóðandi heitum vökva. Vökvi og rafmagn eiga illa saman. Vinsamlegast farið varlega og slasið ykkur ekki á þessu. Hitaelementið er með IEC tengi, eins og er á flestum tölvu ofl.
Það er mögulegt að fá einstaka hluti úr pakkanum ef þú átt einhverjar græjur fyrir. Hafið bara samband.
Það eina sem vantar eru straumsnúru í elementið, en þar er hægt að nota venjulegar straumsnúrur, IEC C13.